Meðlimir Björgunarsveitar Hafnarfjarðar fóru í dag með hjálpargögn til íbúa í Vík í Mýrdal.  Um var að ræða öryggisgleraugu og andlitsgrímur enda ekki vanþörf á vegna öskufalls á svæðinu.  Að því loknu voru heimamenn aðstoðaðir við að þrífa ösku af leikvöllum barna og lóð dvalarheimilis aldraðra svo eitthvað sé nefnt.

Ástandið er vægast sagt skelfilegt og erfitt að gera sér í hugarlund hvernig það er að búa á svæðinu.  Það er okkur því sönn ánægja að geta létt undir með heimamönnum á þessum tímum.

10 manna hópur frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar fór í gær að Eyjafjöllum og aðstoðaði bændur við hreinsunarstörf. Sveitin var í hópi annara sveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar allstaðar af landinu sem aðstoðuðu bændur. Sveitin fékk lánaða kústa ofl frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar einnig fór sveitin með öflugar dælur og kom þessi búnaður að góðum notum.

Um helgina mun sveitin manna gæslupósta fyrir austan og taka þátt í hreinsunarstörfum.

Rétt fyrir kl.9:00 í morgun staðfesti LHG að gosmökkur kæmi úr Eyjafjallajökli, en á áttunda tímanum í morgun fór hún í loftið, ásamt raunvísindamönnum.  Nær hann í 12-14.000 feta hæð.  Er gatið á jöklinum rétt suð-vestur af toppi jökulsins og er um 200 metrar í þvermál.  Samt sem áður virðist sem að rennsli úr jöklinum streymi niður Gígjökul og út í Markarfljót.  Vatnsmagnið í Markarfljóti, við gömlu brúna hafði hækkað um 80 cm á mjög stuttum tíma.

Mikill jarðskjálftaórói hófst í jöklinum um kl.23:00 í gærkvöldi og mældist sterkasti skjálftinn 2,8 á Richter, en stöðug virkni var til kl.02:00 í nótt.

Mynd tekin frá mbl.is

Fyrstu björgunarsveitirnar voru kallaðar út um kl.01:30, en þeirra hlutverk var að aðstoða við rýmingu og upplýsa bílstjóra um yfirvofandi eldgos, en ekki kom til lokunar á umferð fyrst um sinn.  Um kl.04:00 var farið í að loka svæðinu fyrir umferð, frá Skógum að Hvolsvelli.

Í gærkvöldi sinntu sex meðlimir sveitarinnar og aðrir björgunarsveitarmenn aðstoð við slasaða ferðalanga á gönguleiðinni úr Þórsmörk að gosstöðvunum. Einnig komu 2 undanfarar frá sveitinni með þyrlu ásamt öðrum undanförum af höfuðborgarsvæðinu.

Konu sem slasaðist á öxl var fylgt niður í Bása og ekið þaðan á björgunarbifreið til móts við sjúkrabíl kl 18:30.

Þá er talið að karlmaður hafi ökklabrotnað neðan við einstígið Kattarhryggi fyrir ofan Bása klukkan 20:00.  Björgunarsveitir sinntu honum á vettvangi og biðu flutnings með aðstoð þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.  Því miður reyndist ekki unnt að hífa manninn um borð vegna þess hve gilið er þröngt og bratt og aðstæður erfiðar fyrir þyrlu.

Lesa meira »

Á aðalfundi sveitarinnar í síðustu viku skrifuðu 15 nýjir félagar undir eyðstaf sveitarinnar. Þrír af þeim sem skrifuðu undir sem fullgildir félagar hafa starfað undan farin ár á gestaaðild. Af þessum hópi byrjuðu 11  nýliðastarf haustið 2008. Einn skrifaði undir á gestaaðild. Gestaaðild er veitt fullgildum félögum í öðrum sveitum og er undanfari fullrar aðildar að Björgunarsveit Hafnarfjarðar.

Um helgina fór fram Hópstjórnunarnámskeið á vegum SL.  Guðmundur Sigurðsson, Valgeir Rúnarsson og Sigurður Ingi Guðmarsson sóttu þetta námskeið, en þeir Hjálmar Örn Guðmarsson og Dagbjartur Brynjarsson voru leiðbeinendur.  Farið var yfir helstu atriði sem hópstjórar þurfa að hafa skil á.  Farið var yfir t.d. vettvang aðgerðar, SÁBF, stjórnun flokka o.m.fl.  Var námskeiðið alveg til fyrirmyndar og allir ánægðir með framkvæmd þess.  Alls sóttu 11 manns námskeiðið, frá 6 sveitum.