Archive for the “Útkall” Category


Klukkan 14:46 í gær barst útkall vegna elds í bát skammt undan Reykjavík.  Skömmu síðar lagði BS Einar Sigurjónsson úr höfn með áhöfn og búnað til slökkvistarfa.  Skipverjum tókst þó sjálfum að slökkva eldinn og voru teknir í tog af hvalveiðibátnum Dröfn RE 35 og aðstoðarbeiðnin afturkölluð rétt áður en Einar kom að skipunum.

Á sama tíma bárust svo fregnir af vélarvana bát í Hvalfjarðarkjafti og því var björgunarskipinu snúið þangað og báturinn tekinn í tog inn í Sundahöfn.

Þess má geta að skipverjar á Einari urðu fyrir þeirri skemmtilegu reynslu að sigla fram á tvo Beinháfa (Rhincodon typus) sem voru á að giska 6-7 metra langir.  Um er að ræða næst stærsta fisk veraldar og því skemmtileg sjón að sjá.

Comments Comments Off

Rétt fyrir kl.9:00 í morgun staðfesti LHG að gosmökkur kæmi úr Eyjafjallajökli, en á áttunda tímanum í morgun fór hún í loftið, ásamt raunvísindamönnum.  Nær hann í 12-14.000 feta hæð.  Er gatið á jöklinum rétt suð-vestur af toppi jökulsins og er um 200 metrar í þvermál.  Samt sem áður virðist sem að rennsli úr jöklinum streymi niður Gígjökul og út í Markarfljót.  Vatnsmagnið í Markarfljóti, við gömlu brúna hafði hækkað um 80 cm á mjög stuttum tíma.

Mikill jarðskjálftaórói hófst í jöklinum um kl.23:00 í gærkvöldi og mældist sterkasti skjálftinn 2,8 á Richter, en stöðug virkni var til kl.02:00 í nótt.

Mynd tekin frá mbl.is

Fyrstu björgunarsveitirnar voru kallaðar út um kl.01:30, en þeirra hlutverk var að aðstoða við rýmingu og upplýsa bílstjóra um yfirvofandi eldgos, en ekki kom til lokunar á umferð fyrst um sinn.  Um kl.04:00 var farið í að loka svæðinu fyrir umferð, frá Skógum að Hvolsvelli.

Comments Comments Off

Í gærkvöldi sinntu sex meðlimir sveitarinnar og aðrir björgunarsveitarmenn aðstoð við slasaða ferðalanga á gönguleiðinni úr Þórsmörk að gosstöðvunum. Einnig komu 2 undanfarar frá sveitinni með þyrlu ásamt öðrum undanförum af höfuðborgarsvæðinu.

Konu sem slasaðist á öxl var fylgt niður í Bása og ekið þaðan á björgunarbifreið til móts við sjúkrabíl kl 18:30.

Þá er talið að karlmaður hafi ökklabrotnað neðan við einstígið Kattarhryggi fyrir ofan Bása klukkan 20:00.  Björgunarsveitir sinntu honum á vettvangi og biðu flutnings með aðstoð þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.  Því miður reyndist ekki unnt að hífa manninn um borð vegna þess hve gilið er þröngt og bratt og aðstæður erfiðar fyrir þyrlu.

Read the rest of this entry »

Comments Comments Off

Seint í gærkvöld barst beiðni um að hefja leit að göngufólki er hafði villst af leið niður af Keili.  Leitarmenn lögðu af stað úr húsi um miðnætti og fólkið fannst um 4 um nóttina.  Ferðalangarnir voru að vonum ánægðir með að mæta leitarmönnum sem komu færandi hendi með heitt kakó og te.

Comments Comments Off

Undanfarahópurinn hjálpar konunni yfir brúnina. Mynd visir.is

Undanfarahópurinn hjálpar konunni yfir brúnina. Mynd visir.is

Í dag fór Björgunarsveit Hafnarfarðar auk björgunarsveita á svæði 1 og Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins í útkall upp í bakgarð okkar Hafnfirðinga að bjarga konu úr sprungu við Valaból.

Fóru þrír bílar auk fjórhjóls og i þeim 8 undanfarar og 2 bílstjórar.  Fór útkallið á besta veg og var verkefninu lokið á einum og hálfum tíma frá boðun.  Kom í ljós að konan var lítið sem ekkert slösuð og frekar vel á sig komin.  Okkar menn stöðu sig vel að vanda.

Comments Comments Off

Nú þegar þetta er skrifað er sveitin í hvíld eftir átök gærdagsins. Góður árangur var af starfi sveitarinnar í gær þegar þrír einstaklingar björguðust úr rústum verslunarhúsnæðis í miðborg  Port-au Prince. Ljóst er að sveitinni bíða erfið verkefni næstu daga og því er það mikilvægt og jákvætt veganesti inn í þá vinnu að hafa náð góðum árangri í gær.

Mikið starf er unnið hér heima í baklandi sveitarinnar og hafa frá okkar hendi þar staðið vaktina þeir Dagbjartur og Ingólfur. Auk þeirra hafa fjölmargir sveitarmeðlimir komið að undirbúningi sem og útkallsferlinu öllu.

Mikið er af fréttum af starfi sveitarinnar og vill ég benda fólki á vefsíðu þar sem haldið er utan um þessi atriði auk fleiri hluta.

Við sendum fólkinu okkar baráttu kveðjur.

Tengill á upplýsingasíðu.

http://www.facebook.com/pages/Albjodabjorgunarsveit-SL-ICE-SAR/283292745069?v=wall&ref=mf

 

Comments Comments Off