Um Björgunarsveit
Hafnarfjarðar
Þann 26. febrúar 2000 sameinuðust Björgunarsveit Fiskakletts og Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði undir merki Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Við sameininguna varð til ein stærsta og öflugasta björgunarsveit landsins, búin fjölda tækja, mannskap og 50 ára sögu af björgunarstarfi að baki. Björgunarsveit Hafnarfjarðar starfar innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar og er ein af stofneiningum félagsins.
Kallmerki sveitarinnar er SPORI.
Sveitin starfar á flestum vettvangum björgunarstarfs og býr sig þannig undir það að geta brugðist við hvers konar vá, hvort sem er á landi eða sjó. Starfsemina má deila niður í þrjá megin flokka: land-, sjó- og tækjaflokk. Hver starfar á sínu sviði og heldur utan um eiginn dagskrá.
Félagar sveitarinnar leggja mikið á sig til þess að halda sér, jafnt sem tækjum og búnaði í sem allra besta ástandi svo hægt sé að bregðast skjótt við þegar þörf skapast. Námskeið eru haldin reglulega svo og vinnukvöld og æfingar. Auk þess sækja félagar námskeið hjá Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Auk hefðbundiðs starfs björgunarsveita heldur Björgunarsveit Hafnarfirði hlífskyldi um Unglingadeildina Björgúlf og viðheldur þar af leiðandi 20 ára gamalli hefð sem er jafnframt mikilvægur hlekkur í sögu Hafnarfjarðar sem og sögu alls björgunarstarfs á Íslandi þar sem að Björgúlfur er ein elsta unglingadeild landsins.
Í stjórn sveitarinnar starfa 7 manns en auk þeirra tveir varamenn. Stjórnina skipa:
Júlíus Gunnarsson Formaður julli[hjá]spori.is
Harpa Kolbeinsdóttir Varaformaður harpa[hjá]spori.is
Ingólfur Haraldsson Ritari ingo[hjá]spori.is
Pálmi Másson Gjaldkeri palmi[hjá]spori.is
Sigrún Sverrisdóttir Aðstoðar gjaldkeri sigrun[hja]spori.is
Lárus St. Björnsson Meðstjórnandi lalli[hjá]spori.is
Margrét Hrefna Pétursdóttir Meðstjórnarndi margret[hjá]spori.is
Ragnar Heiðar Þrastarson Varamaður ragnarth[hjá]spori.is
Þórólfur Kristjánsson Varamaður thorolfur[hja]spori.is
Stjórnarfundir eru haldnir að jafnaði annan og fjórða mánudag í mánuði frá september til loka maí.






Færslur (RSS)