Smári Guðnason skrifaði | Almennt

Kynningarfundir vegna nýliðastarfs veturinn 2010-2011 verða haldnir í húsi sveitarinnar að Flatahrauni 14 eftirfarandi daga:
Miðvikudaginn 1. september, kl 20:00
Fimmtudaginn 2. september, kl 20:00
Starfið er opið öllum áhugasömum sem fæddir eru ‘93 eða fyrr. Hvetjum alla til að mæta á kynningarfundina og kynna sér í hverju nýliðaþjálfun felst.
Starfandi nýliðar ásamt eldri félögum verða á staðnum og svara þeim spurningum er brennur á fólki.
Senda á Facebook
Þórólfur Kristjánsson skrifaði | Útkall
Klukkan 14:46 í gær barst útkall vegna elds í bát skammt undan Reykjavík. Skömmu síðar lagði BS Einar Sigurjónsson úr höfn með áhöfn og búnað til slökkvistarfa. Skipverjum tókst þó sjálfum að slökkva eldinn og voru teknir í tog af hvalveiðibátnum Dröfn RE 35 og aðstoðarbeiðnin afturkölluð rétt áður en Einar kom að skipunum.
Á sama tíma bárust svo fregnir af vélarvana bát í Hvalfjarðarkjafti og því var björgunarskipinu snúið þangað og báturinn tekinn í tog inn í Sundahöfn.
Þess má geta að skipverjar á Einari urðu fyrir þeirri skemmtilegu reynslu að sigla fram á tvo Beinháfa (Rhincodon typus) sem voru á að giska 6-7 metra langir. Um er að ræða næst stærsta fisk veraldar og því skemmtileg sjón að sjá.
Senda á Facebook
Steinþór Nielsson skrifaði | Almennt

Samstaða
Nú stendur hálendisvakt Björgunarsveitar Hafnarfjarðar sem hæst, en hún hófst síðastliðinn föstudag. Sveitin er staðsett á Sprengisandi með aðsetur í Nýjadal. Tveir fullbreyttir Patrol-jeppar eru á svæðinu ferðafólki til halds og trausts. Tíu manns frá sveitinni hafa staðið vaktina auk þess sem nýliðar hafa flotið með og kynnst ferðalögum á hálendinu.
Verkefni hafa aðallega falist í því að aðstoða ökumenn sem hafa átt í erfiðleikum á svæðinu og auk þess sem farið er um, skálar vaktaðir og ástand vegslóða kannað. Á laugardag gekk hluti hópsins frá Vonarskarði yfir í Nýjadal. Á mánudag er hópurinn kannaði hitastig laugarinnar í Laugafell barst aðstoðarbeiðni frá erlendri konu sem ekki aðeins hafði fest bílinn í snjóskafli heldur var einnig rammvillt. Eftir nokkra leit fannst konan heil á húfi, langt frá þeim stað sem hún taldi sig vera. Vaktin stendur fram á föstudag þegar björgunarsveitin Strákar frá Siglufirði tekur við keflinu.

Senda á Facebook
Steinþór Nielsson skrifaði | Almennt

Sandra á toppi Kala Patthar (5550 m y.s.) með Pumo Ri í baksýn
Nú á vordögum héldu tveir af félögum sveitarinnar, Sandra og Steinþór, til fyrirheitna landsins. Eftir að hafa stundað fræðastörf og brimbretti í Indónesíu var ferðinni heitið á norðlægari slóðir nefnilega til Nepal.
Fyrsta hindrunin á veginum var strax við komun þar sem allsherjarverkfall um allt land setti strik í reikninginn, en voru þau þó mjög fegin að þurfa ekki að ganga frá flugvellinum með allt sitt hafurstask inn í Kathmandu. Þegar þangað var komið var vílað og dílað um ferðatilhögun bak við luktar dyr og með ljósin slökkt hjá leiðsögumannafyrirtækinu en allt hafðist þetta þó að lokum. Loksins var haldið frá Kathmandu til Lukla þar sem við tók stórkostleg ganga upp Khumbudalinn. Stefnan var tekin á “the bottom of the top of the world” eða að rótum sjálfs Everest sem ku vera hið hæsta sinnar tegundar. Gekk gangan vel og voru margir sögufrægir staðir heimsóttir á leiðinni, Lukla, Namche, Tengboche o.fl. Voru ferðalangarnir frá sér numdir yfir fegður fjallanna og þá ekki síst Ama Dablam sem nokkrir félagar sveitarinnar þekkja vel. Í Lobuche sem er í tæplega 5000 m hæð varð Steinþór hæðarveikur og þurfti að lækka sig hið snarasta. Sandra hélt hins vegar ótrauð áfram og heimsótti grunnbúðir Everest (5380 m y.s.) og gekk á tind Kala Patthar (5550 m y.s.) og er þar með sá sveitarmeðlimur farið hefur hvað hæst frá stofnun Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.
Leiðir lágu aftur saman í jakuxaþorpinu Dingboche og þaðan var gengið aftur niður til Lukla. Ferðin tók allt í allt tvær vikur og voru ferðalangar yfir sig ánægðir með að kynnast sjálfum Himalaya-fjöllunum. Við komuna til Kathmandu var strax farið að íhuga næstu landvinninga og er þá jafnvel rætt um tinda. Nánar um það síðar…

Steinþór og Sandra á leið yfir eina af mörgum hengibrúm neðarlega í Khumbu-dalnum
Senda á Facebook
Harpa Kolbeinsdóttir skrifaði | Almennt
Á fimmtudaginn í síðustu viku hlaut Björgunarsveit Hafnarfjarðar hvatningarverðlaun Rótaryklúbbsins Straums í Hafnarfirði. Þórir Haraldsson, forseti klúbbsins afhenti okkur fallegan grip sem Fríða Jónsdóttir gullsmiður hannaði. Þetta eru þriðju hvatningarverðlaunin sem klúbburinn afhendir á jafn mörgum árum og í ár hlutum við verðlaunin fyrir óeigingjarnt starf við leit og björgun.
Við þökkum kærlega fyrir okkur.
Senda á Facebook
Harpa Kolbeinsdóttir skrifaði | Almennt
Í gær fékk sveitin veglega gjöf frá Lionsklúbbnum Ásbirni í Hafnarfirði. Þeir Friðrik Ólafur Guðjónsson, formaður, Pétur Júlíus Halldórsson og Halldór Kristjánsson komu færandi hendi með þrjá vandaða nætursjónauka. Við þökkum kærlega fyrir okkur .

Senda á Facebook